Set upp Linux netþjóna. Eða öllu heldur LAMP netþjóna sem stendur fyrir; Linux Apache Mysql Php, sem svo aftur þíðir á mannamáli að viðkomandi netþjónn er þess fullbúinn að sinna almennri netþjónustu við internetið og um leið heimaneti ef vill.
Að auki er sett upp ISPConfig sem er vefviðmót til að setja upp og hýsa lén. ISPConfig stendur fyrir; Internet Service Provider Config. Þessu fylgir uppsetning á póstþjóni til að höndla tölvupóst viðkomandi léna. Eldveggur, ruslpósts sía og DNS þjónn eða öllu heldur nafnaþjónn, fylgja með í pakkanum.
CMS þýðir Content Management System. Drupal er mjög gott CMS kerfi sem bíður upp á fjöldann allan af viðbótum sem hægt er að bæta við eftir þörfum hvers og eins.
Síðast en ekki síst er boðið upp á reglulega afritatöku af viðkomandi vefþjónum.
tölvupóstfangið er steini á brum.is
Theme by Danetsoft and Danang Probo Sayekti inspired by Maksimer