Afnám á bankaleyndinni er stóra málið ef það á að gera eitthvað af viti á næstunni. Hvað finnst ykkur um að bankaleyndinni verði aflétt af Íslensku bönkunum frá því þeir voru seldir? Að mínu mati sé ég ekki annað en það sé mál málanna varðandi bankahrunið á Íslandi og til þess að átta sig á spillingunni á Íslandi. Spillingaröflin hafa stjórnað landinu undanfarna áratugi leynt og ljóst. Allir hafa vitað að spilling var mikil á Íslandi en fæstir vissu hversu mikil hún var og hverning spillingin birtist nákvæmlega. Hver var að hygla hverjum ,hvernig og hvenær. Spilling er búin að leggja fjárhag landsmanna nánast í rúst. Heimskreppan kom þeirri atburðarrás af stað sem hið spillta kerfi okkar þoldi ekki vegna þess að það var of áhættusækið og var í raun orðið að einu alsherjar píramída svindli sem sett var upp til að fámennur hópur gæti hagnast á því og komið háum fjárhæðum undan. Þessir menn sem við þurfum að nafngreina nýttu sér hið spillta ólýðræðislega stjórnkerfi landsins. Hef heyrt að flestum toppunum innan bankageirans hafi verið það fullljóst 2006 að bankarnir mundu ekki standast yfirvofandi heimskreppu en mönnum var fullljóst að hún var ekki langt undan 2006 og þá jafnvel sambærileg eða verri heimskreppa en 1929 .
Íslendingar voru að fjárfesta þegar verð á fyrirtækjum var í hæstu hæðum og meðal annars í flugi þegar vitað er að ekki er langt í kolefna skatta og samdrátt í flugi. Hversu vitlausir geta menn verið? Það er algerlega nauðsynlegt fyrir lýðræðið í landinu að afnema bankaleyndinni í landinu upp á að finna út hvaða fólk var á bak við hvaða glæpi og hvar peningarnir sem Íslenskur almenningur á að taka ábyrgð á eru. Það sem ég veit aftur á móti er það að skítapakkið sem stjórnað hefur þessu landi í skjóli hins svokallaða Sjálfstæðisflokks sem er í raun bara deild í glæpasamtökum eða eins og Jón Baldvin orðaði það "regnhlífa samtök hagsmunahópa" mun berjast með kjafti og klóm á móti þessu vegna þess að afnám banka leyndarinnar er algerlega nauðsynlegt til að nokkurntímann eigi að vera hægt að uppræta spillinguna. Með öðrum orðum þá þrífst spillingin í skjóli bankaleyndarinnar. Ég segi við alþingi Íslendinga Áfram nú. Standið ykkur og varpið af ykkur undirlægjuhættinum við auðmagnið og sannið nú tilverurétt ykkar með því að samþykkja afnám bankaleyndarinnar möglunarlaust. Hugsið um framtíð lýðræðisins og fólksins í landinu.
Theme by Danetsoft and Danang Probo Sayekti inspired by Maksimer